Myndband frá tískusýning í Rostock
20/09/07 15:09
Nú er tískusýningunni lokið í Rostock og gekk hún
mjög vel. Hér að neðan er hægt að smella á krækjuna
til þess að sjá myndbandið.
Tískusýning í Rostock
Kveðja,
Jóna Björg
Tískusýning í Rostock
Kveðja,
Jóna Björg
Tískusýning í Rostock
04/09/07 16:54
Nú á haustdögum er heilmargt á döfinni. Þar ber fyrst að nefna heilmikinn undirbúning fyrir tískusýningu sem haldin verður í St. Nicolai kirkjunni í Rostock í Þýskalandi þann 14. september. Kirkjan er síðan 1350 og er aðallega notuð fyrir tónleika og sýningar af ýmsu tagi. haft var samband við okkur í ágúst frá íslenska sendiráðinu í Berlín og þess farið á leit að jbj-design tæki þátt í sýningunni.
Það næsta sem við tökum þátt í er sýningin handsverkshef í hönnun á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands í Gerðubergi frá 22. september - 11. nóvember.
Og síðast en ekki síst er undirbúningur fyrir handverksmarkaðinn í Ráðhúsi Reykjavíkur vel á veg komin. Það er mikill heiður að vera með á þeirri sýningu.
Kveðja,
Jóna Björg
