Jóna Björg Jónsdóttir fæddist árið 1952. Að stúdentsprófi loknu árið 1974 hóf hún nám í meinatækni og lauk prófi árið 1978. Árið 1990 stofnaði hún Saumagallerí jbj sem framleiddi eingöngu barnafatnað. Frá árinu 2005 hefur hún einnig hannað og framleitt kvenfatnað úr ull og silki undir merkinu jbj design.
Allt efnið er búið til frá grunni. Ferlið nefnist þæfing og er ein elsta aðferð sem notuð hefur verið í textílgerð. Íslensk náttúra og hálendi landsins hefur mikil áhrif á hönnunina. Á flíkunum sem framleiddar eru má sjá hrjúfa áferð hraunsins, silkimjúkt yfirborð mosans og jökulurðir skriðjöklanna. Það má því segja að áferð og litir efnisins hafi beina skírskotun til íslenskrar náttúru.
Til að byrja með er silkið litað í þeim lit sem hentar. Ullina er hægt að fá í mörgum litum. Við framleiðslu er notað vatn, hiti, núningur og hrein íslensk jurtasápa sem inniheldur eingöngu náttúrleg efni sem brotna auðveldlega niður. Engir mengandi þættir koma við sögu.
Í lokaáfanga framleiðslunnar má segja að ullin galdri silkið með sér í ferðalag textilhönnunar og framleiðslu og það er ekki fyrr en á leiðarenda sem hægt er að sjá hver útkoman verður. Hver flík verður einstök og engar tvær eins. Það má því segja að framleiðsluferillinn líkist því sem gerist í náttúrunni sjálfri þar sem síbreytileikinn ræður ríkjum.
Staðsetning:
Bæði verslunin og framleiðsla jbj design eru staðsett í Skólagerði 5, 200 Kópavogi.
Einnig má nálgast hluta af jbj design vörunum á eftirfarandi stöðum:
- Grand Hótel Reykjavík
- Kraum ( Aðalstræti 10, Reykjavík )
- Bláa Lónið
- Safnabúð Minjasafni Akureyrar
- Gallerí Gersemi ( Brákarbraut 10, 310 Borgarnes )
Opnunartími:
Verslunin í Skólagerði er opin 12 - 18 mánudag til fimmtudags.
JÓLAOPNUNARTÍMI:
föstudaginn 16. 12 frá kl. 12 til 18
laugardagur 17. 12 frá kl. 12 til 16
sunnudaginn 18. 12, endilega hafa samband í síma 6982446 til að fá afgreiðslu
Opið skv. venju síðustu viku fyrir jól, lokað á Þorláksmessu og yfir jólin.
Opna síðan hress 3. jan 2012
Gleðilega hátið.
Starfsmenn:
Eigandi / aðalframleiðandi / hönnuður:
Jóna Björg Jónsdóttir
Samband:
Sími: 554-2718
email: jbj(at)jbj.is
Fyrirsætur:
Guðrún Ragna Yngvadóttir
Júlía Tan Kimsdóttir
Ljósmyndari:
Kolbrún Kristjánsdóttir - 2007 línan
Harpa Hrund - 2006 línan
Sérstakar þakkir:
Ozio - kærar þakkir fyrir að lána skó og skart fyrir myndatöku á 2007 línunni.
Vefhönnuður:
Ingiber Freyr Ólafsson
ingiber(at)gmail.com
